Persónuverndarstefna
Hvaða upplýsingum við söfnum
Brooks Ísland (Run2 ehf.) kann að safna, nota, geyma eða flytja mismunandi flokka persónuupplýsinga um viðskiptavini sem skipta má í eftirfarandi flokka:
- Auðkennisupplýsingar: nafn.
- Samskiptaupplýsingar: netfang, símanúmer, heimilisfang, póstnúmer og staður.
- Upplýsingar um kaupsögu: yfirlit yfir þær vörur sem hafa verið keyptar í gegnum vefverslun Brooks Ísland.
Brooks Ísland safnar ekki viðkvæmum persónuupplýsingum á borð við kynþátt, uppruna, trúarbrögð, kynhneigð, pólitískar skoðanir, aðild að stéttarfélögum og svo framvegis.
Tilgangur öflunar
Brooks Ísland nýtir persónuupplýsingar til þess að afgreiða pantanir og til að greina betur þarfir viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Með þeim hætti getur Brooks Ísland ákveðið hvaða vörur eiga að vera í birtingu á vefversluninni og hvaða efni á að miðla áfram til viðskiptavina í markaðslegum tilgangi.
Áskrifendur á póstlista geta hvenær sem er óskað eftir því að ekki verði sent markaðsefni til þeirra með því að afskrá sig af póstlista. Hægt er að gera það með því að smella á tengil sem er neðst í öllum tölvupóstum frá Brooks Ísland.
Taka skal fram að ef áskrifandi á póstlista afskráir sig af póstlista mun sá aðili ekki lengur fá markaðsefni sent frá Brooks Ísland. Brooks Ísland er ennþá heimilt að vinna með persónuupplýsingar aðila sem tengjast kaupum á vörum og viðskiptasögu.
Miðlun persónuupplýsinga
Brooks Ísland selur ekki persónuupplýsingar og miðlar þeim ekki til þriðja aðila í markaðslegum tilgangi.
Til að hægt sé að ljúka viðskiptunum berast þó nauðsynlegar upplýsingar til þeirra þjónustuaðila sem koma að afgreiðslu pöntunarinnar, og þá einungis þær upplýsingar sem hver þeirra þarf:
- Greiðslumiðlun (Teya): greiðslan sjálf fer fram á öruggri síðu Teya. Kortaupplýsingar eru slegnar inn hjá Teya og fara aldrei um brooks.is — við hvorki sjáum þær né geymum.
- Flutningsaðilar (Dropp og Pósturinn): nafn, heimilisfang og samskiptaupplýsingar viðtakanda, svo hægt sé að afhenda sendinguna.
- Póstlisti (PostBeagle): netfang — og nafn og símanúmer sé skráningin gerð í kassanum — geymt hjá PostBeagle fyrir okkar hönd, og einungis hafir þú sjálf(ur) beðið um að fá markaðsefni sent. Skráning fer aldrei fram sjálfkrafa með pöntun; hakið í kassanum er autt þar til þú setur það. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með tengli neðst í hverjum pósti.
Vefkökur
Nauðsynlegar vefkökur eru ein. Sú fyrri heldur utan um körfuna svo hún haldist á milli síðna og eyðist sjálfkrafa eftir 30 daga. Hvorug geymir persónuupplýsingar og þær eru einungis lesnar af brooks.is.
Auk vefkakanna geymir vafrinn þinn lista yfir þær vörur sem þú hefur skoðað síðast, svo sýna megi þær neðst á vörusíðu. Listinn liggur í vafranum sjálfum, inniheldur einungis vörunúmer og ekkert auðkenni, og hverfur þegar gögn vafrans eru hreinsuð. Vörunúmerin berast okkur á meðan röðin er sótt, svo hægt sé að ná í myndir og verð, en þau eru hvergi geymd hjá okkur og hvorki tengd við þig né við pöntun.
Á brooks.is eru engar vefkökur eða skriftur frá þriðja aðila til greiningar, mælinga eða markaðssetningar.
Heimsóknatalning
Við teljum heimsóknir á vefþjóninum sjálfum til að sjá hvaða síður eru skoðaðar og hvaðan gestir koma. Til þess er engin vefkaka notuð og ekkert auðkenni vistað í vafranum þínum. Talningin krefst því ekki samþykkis og er ekki í vefkökuvalinu.
IP-tölu er hvergi haldið til haga. Hún er dulkóðuð ásamt upplýsingum um vafrann með lykli sem valinn er af handahófi á hverjum degi, og þeim lykli er eytt tveimur dögum síðar — eftir það er ekki hægt að rekja heimsókn til baka, hvorki af okkur né öðrum. Það sem geymist er hvaða síður voru skoðaðar, hvaða vefsvæði vísaði á okkur, land og tegund tækis. Ekkert af því er tengt við pöntun, nafn eða netfang.
Réttindi notenda vefsvæðis og áskrifenda á póstlista
Í vissum tilvikum hafa þeir aðilar sem verslað hafa vörur í gegnum vefverslun Brooks Ísland, eða eru á póstlista, ákveðinn rétt til þess að fá persónuupplýsingum sínum eytt eða fá slíkar upplýsingar afhentar.
Upplýsingar um persónuvernd má finna á www.personuvernd.is.
Samskipti
Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar eða athugasemdir bendum við þér á að hafa samband við okkur í netfangið brooks@brooks.is.
Um kaup, sendingar og skilarétt gilda skilmálar Brooks Ísland.
Persónuverndarstefna í gildi frá 12.8.2026.
